Kýrhausinn: Tækni Le Tours. Ritstjórar: Hrönn Hilmarsdóttir, Jón Karl Helgason, Kristján Jóhann Jónsson og Sigríður Steinbjörnsdóttir. Reykjavík: Bjartur 2002.
Höfuðmarkmið Kýrhausins eru að auka leshraða nemenda og bæta lesskilning þeirra, venja þá við að lesa texta af ólíku tagi og kynna þeim ákveðin grundvallarhugtök í bókmenntagreiningu og bragfræði. Í verkefnavinnu er lögð áhersla á að nemendur venjist við að lesa upphátt, taki þátt í umræðum og verkefnavinnu og öðlist sjálfstraust við að flytja mál sitt frammi fyrir öðrum. Sérstök verkefni gefa nemendum tækifæri til að túlka línurit, myndir og gröf og venjist við að nota hjálpargögn á borð við orðabækur. Þá eru fjölmörg ritunarverkefni í bókinni.