Jón Karl Helgason. Herra Þráinn. 1005, 3/7 (2015).
Herra Þráinn er safn stuttra texta sem eru á mörkum menningarfræðilegrar greiningar og heimspekilegs skáldskapar. Lesandinn slæst í för með herra Þránni sem ver dýrmætum tíma í að hlusta á Þórhall miðil í útvarpinu, skoða Marlboro-auglýsingar í erlendum tímaritum og horfa á ljósmynd af Sophiu Loren og Jayne Mansfield inni á klósetti, milli þess sem hann svitnar í spinning í World Class. Sá sem hefur séð sjálfsupptekinn nútímann með augum herra Þráins mun í versta falli rakna úr áralöngu roti og í besta falli yppta öxlum.
Umfjöllun
- Snæbjörn Arngrímsson. „Jón Karl og 1005.“ Kaktusinn 22. nóvember 2015.