Uncategorized

M.A. ritgerðir Ástu Kristínar og Ernu

Þær Ásta Kristín Benediktsdóttir og Erna Erlingsdóttir hafa á þessu ári lokið við M.A. ritgerðir í íslenskum bókmenntum undir minni leiðsögn. Í ritgerðinni „“Form og stíll örðugt viðfangs.“ Frásagnaraðferð í verkum Jakobínu Sigurðardóttur“ færir Ásta Kristín veigamikil rök fyrir því að Jakobína eigi skilið að vera talin einn af formbyltingarhöfundum íslenskrar sagnagerðar. Ritgerð Ernu ber titilinn „Skáldskapur og […]

M.A. ritgerðir Ástu Kristínar og Ernu Read More »

Kennsluvika í Feneyjum

Vikuna 3. til 9. október 2010 verð ég gestakennari við málvísindadeild Università Ca’ Foscari í Feneyjum, og flyt þar meðal annars fyrirlestra um bókmenntalega meðvitund í íslenskum miðaldabókmenntum og um viðtökur Íslendingasagna í Evrópu á 19. og 20. öld. Þá mun ég taka þátt í vinnustofu sem helguð er fjölkerfiskenningum (polysystem-theory) ísraelska fræðimannsins Itamar Even-Zohars

Kennsluvika í Feneyjum Read More »

Hugleiðing um helgifestu

Á undanförnum öldum hafa tilteknir evrópskir einstaklingar átt beinan eða óbeinan þátt í að móta og efla þjóðarvitund landa sinna, gjarnan með afskiptum af stjórnmálum eða störfum á vettvangi menningar og lista. Í fyrirlestri sem ég flyt í fundaröð Alþjóðamálastofnunar föstudaginn 1. október ræði ég um þær formgerðir og þá siði sem mótast hafa í kringum nöfn og

Hugleiðing um helgifestu Read More »

Sameiningartákn þjóðarinnar

Í tengslum við Vísindavöku, sem haldin er föstudaginn 24. september, býður RANNÍS almenningi í Vísindakaffi dagana á undan á Súfistanum, Laugavegi 18, frá kl. 20.00-21.30. Fimmtudaginn 23. september mun ég fjalla þar um efnið „Hver eru sameiningartákn íslensku þjóðarinnar? Frá Njáli Þorgeirssyni til Helga Hóseassonar.“ Mig langar til að fá gesti til að velta fyrir sér

Sameiningartákn þjóðarinnar Read More »

Uppi á stórum stalli Jón

Sunnudaginn 12. september næstkomandi verð ég meðal fyrirlesara á málþingi sem Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra stendur fyrir. Þingið ber yfirskriftina „Framtíð Jóns Sigurðssonar – Karlar á stalli og ímyndasköpun“ og er efnt til þess í tilefni af væntanlegu stórafmæli Jóns forseta á næsta ári. Aðrir fyrirlesarar eru Sigurður Gylfi Magnússon, Páll Björnsson

Uppi á stórum stalli Jón Read More »

Turnleikhús Thors og Inception eftir Nolan

Þessa dagana er ég að ganga frá fræðigrein til prentunar um skáldsöguna Turnleikhúsið (1979) eftir Thor Vilhjálmsson. Greinin mun birtast í næsta hefti Ritsins, tímariti Hugvísindastofnunnar, seinna á þessu ári. Söguna greini ég meðal annars með hliðsjón af skrifum Umbertos Eco um völundarhús, hugmyndum Italo Calvino um veruleikasvið og umfjöllun Brians McHale um tálsýnir (trompe

Turnleikhús Thors og Inception eftir Nolan Read More »

Ný þýðing Jónasar Hallgrímssonar

Árið 1906 komu út á íslensku fjórar þýðingar Jónasar Hallgrímssonar á áður óþekktum ævintýrum eftir danska skáldið Hans Christian Andersen. Einu þessara ævintýra fylgdi danskur frumtexti og í sömu útgáfu mátti einnig finna áður óbirta smásögu eftir Jónas sjálfan. Allir höfðu þessir textar orðið til í framhaldi af ósjálfráðri skrift sautján ára menntaskólapilts, Guðmundar Jónssonar, síðar

Ný þýðing Jónasar Hallgrímssonar Read More »

Rannsóknir á Prešeren

Dagana 20. maí til 10. júní 2010 nýt ég starfsaðstöðu við Rannsóknarstofnun slóvenskra bókmennta og bókmenntafræða vegna sameiginlegs rannsóknarverkefnis hennar og Íslensku- og menningardeildar Háskóla Íslands sem fengið hefur heitið Cultural Saints of the European Nation States. Í fyrsta áfanga beinast rannsóknirnar að Jónasi Hallgrímssyni (1807-1845) og slóvenska skáldinu France Prešeren (1800-1849) en þeir eiga ýmislegt

Rannsóknir á Prešeren Read More »