Matthías Viðar Sæmundsson (23. júní 1954 – 3. febrúar 2004) var bókmenntafræðingur og dósent í íslensku við Háskóla Íslands. Hann tók BA próf frá Háskóla Íslands í bókmenntafræði og íslensku og cand.mag.-próf í íslenskum bókmenntum og stundaði nám í samanburðarbókmenntum við háskólann í háskólann í Montpellier í Frakklandi árið 1978. Matthías Viðar var umsjónarmaður menningarþátta í Sjónvarpinu, bókmenntagagnrýnandi og flutti pistla um menningarmál. Hann samdi nokkrar bækur og ritstýrði öðrum og gerði heimildarmyndir fyrir sjónvarp. Matthías Viðar var stofnaði vefritið Kistan.is árið 1999.
Bækur
- Mynd nútímamannsins. Um tilvistarleg viðhorf í sögum Gunnars Gunnarsonar (1982)
- Stríð og söngur. Sex skáld segja frá (1985)
- Ást og útlegð. Form og hugmyndafærði í íslenskri sagnagerð 1850-1930 (1986)
- Minningar barnalæknis. Lífssaga Björns Guðbrandssonar (1986)
- Myndir á sandi. Um frásagnalist nútímaskáldsagna (1991)
- Galdrar á Íslandi (1992)
- Galdur á brennuöld (1996)
- Héðinn, Bríet, Valdimar og Laufey. Fjölskylda og samtíð Héðins Valdimarssonar (2004)
Greinar um bókmenntir og menningarástand fyrri alda
- Syrpa um Kristján Fjallaskáld (1984)
- Sögur og ritgerðir. Kristján Jónsson 1842-1869 (1984)
- Ísland er þjóð, öll sökt í blóð. Tyrkjarán og Spánverjavíg (1990)
- Hungurveröld hreppstjórans (1991)
- Þrímynd karlmannsins. Hellislistamaðurinn Jesú Kristur og svarti baróninn (1996)
- Litlu varð Vöggur feginn (1997)
- Upplýstir skólapiltar, drykkfelld skál og kynlegir kvistir (1999)
- Uglunnar skúmla blikk (1999)
Greinar um nútímabókmenntir
- Jóhann Sigurjónsson og módernisminn (1979)
- Einfarar og utangarðsmenn. Um nokkrar sögur eftir Thor Vilhjálmsson og Geir Kristjánsson (1981)
- Að vera eða ekki. Um sögur eftir Gest Pálsson og Sigurð Nordal (1983)
- Götustelpa. Eða tilraun til túlkunar (1986)
- Í leit að eigin spegilmynd. Hugleiðing um abstraktslist og bókmenntir (1987)
- Menning og bylting. Um upphaf íslenskra nútímabókmennta af gefnu tilefni (1988)
- Mynd á Sandi. Um frásagnarlist nútímaskáldsagna (1988)
- Hálf öld í ríki hákarls. Hugleiðing um súrealisma (1989)
- Skáldið (1989)
- Á aðra hlið öskraði dauðinn, brjálæðið hló á hina (1990)
- Blekking og þekking. Um íslenska skáldsaganagerð (1991)
- Dimmir draumar. Frá gotneskum hryllingi til líffræðilegrar martraðar (1991)
- Þunglyndi sem flogteygðir fingur. Hugleiðing um sagnalist Guðmundar G. Hagalíns (1999)
- Hugleiðingar um tungumál fuglanna (1999)
- Böðlar í sögn og sögu (2001)
- Blóðskurðir og valdavélar (2001)
- (Of)heyrnir. Um hljóðarapp á sautjándu öld (2001)
Fræðileg ástundun
- Til varnar hjátrúnni. Um hellistálsýn í íslenskum fræðum (1997)
- Flugur og fjöll (1999)
Ritdómar