Tímaritröðin 1005 hóf göngu sína 10. maí 2013 og kom út í þrjú ár, alltaf á þessum sögulega degi. Í þessari ritröð voru sameinaðir styrkleikar tveggja útgáfuforma, tilraunagleði og fagurfræðilegur margbreytileiki tímaritsins annars vegar og áhersla ritraðarinnar á einstök bókverk í tímalegri samfellu hins vegar. Verkefnið var óbeint framhald af ritröðinni Svörtu línununni sem út kom hjá Bjarti áratug fyrr. Lögð var áhersla á tilraunakennd verk og önnur sem útgefendur töldu ósöluvænleg af einhverjum ástæðum eða komust einfaldlega ekki á prent. Ég sat í ritstjórn fyrsta árgangsins ásamt Þresti Helgasyni, Eiríki Guðmundssyni, Hermanni Stefánssyni, Jóni Halli Stefánssyni, Oddnýju Eiri Ævarsdóttur, Ragnari Helga Ólafssyni og Sigurbjörgu Þrastardóttur en á hverju nýju ári bættust þeir höfundar sem gátu út í 1005 í hópinn. Útgáfubækurnar urðu 14 talsins.
- Hermann Stefánsson. Hælið, glæpasaga um geðveiki (2013)
- Sigurbjörg Þrastardóttir. Bréf frá borg dulbúinna storma, ljóðabálkur (2013)
- Jón Hallur Stefánsson. Bautasteinn Borgesar, fræðigátubók (2013)
- Sveinn Yngvi Egilsson. Hjarðljóð úr Vesturbænum, ljóðasafn (2014)
- Bragi Ólafsson. Rússneski þátturinn, smásögur (2014)
- Adolfo Bioy Casares, Uppfinning Morels, skáldsaga í þýðingu Hermanns Stefánssonar (2014)
- Styttri ferðir, úrval smáprósa eftir 27 höfunda (2014)
- Halldóra Thoroddsen. Tvöfalt gler, nóvella (2015)
- Jón Karl Helgason. Herra Þráinn, táknfræðileg ævisaga (2015)
- Thomas Bernhard. Eftirherman, örsögur í þýðingu Óskar Árna Óskarssonar (2015)
- Sigurlín Bjarney Gísladóttir, Jarðvist, nóvella (2015)
- Ragnar Helgi Ólafsson, Fundur útvarpsráðs þann 14. mars 1984 og mótandi áhrif hans á kynverund drengsins (2015)
- Oddný Eir Ævarsdóttir, Fæðingarborgin, bréfasafn (2015)
- Eiríkur Guðmundsson, Blindur hestur, ljóðasafn (2015)
Umfjöllun
- Úlfhildur Dagsdóttir. „Lífsseigar eldspýtur.“ Tímarit Máls og menningar 74/4 (2013): 120-26.
- Friðrika Benónýsdóttir. „Þrír eðalpennar í sínu elementi.“ Fréttablaðið 27. júní, 2013, s. 50.
- Einar Falur Ingólfsson. „Flottur hópur og dúndur verk.“ Morgunblaðið 10. maí 2015, s. 54-55.